Fréttir frá strarfinu


JesúKonur fóru á kvennamót til Noregs
  Dagana 27.-30. maí sl. fóru nokkrar konur saman á kvennaráðstefnu JesúKvenna í Noregi. Aðalræðukona helgarinnar var hin Bandaríska Lisa Bevere. Mótið var haldið rétt fyrir utan Osló í húsnæði OKS (Oslo Kristne Senter) og voru u.þ.b. 1200 konur á mótinu.

Fleiri myndir eru í myndaalbúmi síðunnar

Helgin var yndisleg og uppörvandi. Lisa Bevere var hvetjandi og talaði af krafti til Norrænu kvennanna, því konur frá Færeyjum, Svíþjóð og Danmörku voru einnig á staðnum. Hún hvatti konur til að vera þær konur sem Guð hafði ætlað okkur að vera og stíga fram til þeirra verka sem hann hefur kallað okkur til, einnar og sérhverrrar.
Lisa Bevere deildi sínum persónulega vitnisburði hvernig Guð hefði læknað af átröskun og leyst hana undan  slæmri sjálfsmynd.  Hún stafar nú ásamt eiginmanni sínum, John Bevere, sem leiddi hana til trúar á fyrsta stefnumótinu þeirra. Saman ferðast þau víða um heim og prédika fagnaðarerindið um Jesú Krist.    Lesa meira um Lisu Bevere.
 

Merkt íþróttaföt

Glæsilegur íþróttafatnaður
JesúKonur hafa látið merkja íþróttabuxur og renndar hettupeysur með lógói starfsins á Íslandi.
Um er að ræða svartar erobic buxur (Pure Lime) með hvítri áletrun. Buxurnar er hægt að fá í öllum stærðum. Verð 8500 kr.*
Peysurnar eru líka svartar með hvítri áletrun. Verð á peysunum er 8500 kr og er hægt að nálgast þær m.a. í versluninni Jötu í Fíladelfíu Reykjavík.

Hettupeysur fyrir JesúStelpur
JesúStelpur hafa látið merkja hettupeysur með lógói sínu. Í boði eru svartar eða ljósgráar renndar hettupeysur með bleikri áletrun. Peysurnar eru í öllum stærðum. Verð 6500 kr.*

*verð er byrt með fyrirvara um verðbreytingar frá heildsala

Pantanir eða meiri upplýsingar um íþróttafötin er að fá á jesukonur@jesukonur.is


Alþjóðlegur bænadagur fyrir næstu kynslóð

Laugardaginn 14. nóember var alþjóðlegur bænadagur fyrir næstu kyndlóð. Víða um heim voru hundruð þúsunda kvenna að biðja fyrir börnunum og fyrir næstu kynslóð þennan dag.

JesúKonur fléttuðu bænadaginn inn í sína mánaðarlegu samverustund í Reykjavík. Stundin var yndisleg og var tekinn tími fyrir bænina í lok stundarinnar. Við fengum að heyra vitnisburði kvenna sem gátu staðfest að fyrirbæn skiptir skpöum fyri rlíf okkar.


Breyttar samverustundir á Selfossi

Breytingar hafa átt sér stað á samverustundum starfsins á Selfossi. Í stað þess að hittast á laugardagsmorgnum í kirkjunni munu samverustundirnar verða í heimahúsum í vetur. JesúKonur hittast á mismunandi heimilum í hvert sinn og því hvetjum við ykkur til að kynna ykkur vel hvar næsta samverustund verður haldin. Nánari upplýsingar er að finna undir staðbundnir hópar undir linknum Um JesúKonur.
Einnig er hægt að finna upplýsingar um samverurnar á heimasíðu Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi www.selfossgospel.is


Fréttir frá JesúKonum á Selfossi

Lesa meira
Í vetur hafa Jesúkonustundir á Selfossi verið fyrsta laugardag í mánuði. Þá hafa konur komið saman milli kl. 10 -12 átt gott samfélag, lofað Guð, hlustað á hugleiðingu og beðið saman. Nokkuð mikið af nýjum konum hafa komið á fundina í vetur og nokkrar þeirra komið aftur og aftur sem er alveg frábært.

Fréttir frá JesúKonum á Akureyri

Dömurnar norðanheiða hófu annan starfsvetur sinn í september 2008. Hópur af konum fór saman á ráðstefnuna sem JesúKonur héldu í lok september og fögnuðu svo fyrstu JesúKonu stundinni hér í október.
Sjá einnig nýjar myndir frá Akureyri í myndaalbúmi síðunnar

Sjáðu myndir frá starfinu á Akureyri í myndaalbúmi síðunnar

Lesa meira...
 


Sameinum kynslóðirnar
  Í apríl voru JesúKonur og JesúStelpur með sameiginlega stund í Reykjavík. Það hefur verið þrá okkar lengi að reyna með markvissum hætti að brúa kynslóðabilið og hvetja eldri konur til að gefa sig meira að yngri konum og stúlkum og að sama skapi að hvetja yngri konur og stelpur til að verja meiri tíma með eldri konum.

Allar höfum við eitthvað fram að færa inn í líf hverrar annarar og það er svo margt sem við getum lært hver af annarri. Þess vegna ákváðum við að hafa þessa sameiginlegu stund 


Kítku á myndirnar frá stundinni í myndaalbúmi síðunnar

Lesa meira...

JesúKonur og karlar sameinuðust..

Á haustmóti Fíladelfíu sem haldið var  7-9 nóvember sl. opnuðu Jesúkonur sína hefðbundnu samverustund fyrir karlmönnum. Þetta er í fyrsta sinn sem það hefur verið gert hér á landi. Sundin var yndisleg og prédikaði Dennis Greenidge frábært orð, en hann var aðalræðumaður haustmótsins.

Mjög margir voru á samverustundinni bæði ungir og aldnir. Allir virtust njóta þessarar stundar og voru karlarnir hæstánægðir. Nú skorum við á karlana að fara af stað með samverustundir fyrir menn!

Sjá myndir af samverustundinni í myndaalbúmi síðunnar.
 
 


Á tímum sem þessum - fyrsta innlenda JesúKonu ráðstefnan á Íslandi

"Á tímum sem þessum" er fyrsta innlenda ráðstefnan sem JesúKonur á Íslandi stóðu fyrir og var haldin dagana 26.-27. september sl. Helgin stóð svo sannarlega undir væntingum og var stórkostlegt að sjá konur og stelpur á öllum aldri frá mörgum mismunandi kirkjudeildum saman komnar til að lyfta upp nafni Jesú Krists.

Tæplega 300 konur og stelpur voru saman komnar á föstudagskvöldinu, á annað hundrað á laugardaginn og hátt í 300 voru á lokasamverunni á laugardagskvöldið en yfirskrift lokasamkomunnar var Love Story Evening eða Ástasögukvöldið. Um 20 unglingsstelpur tóku þátt í smiðjunni fyrir stelpur á laugardaginn.

Lesa meira



Just Give Me Jesus
Tæplega 90 Íslenskar JesúKonur fóru til Osló á ráðstefnu!

Helgina 11. - 14. Maí 2007 stóðu JesúKonur á Íslandi fyrir hópferð til Osló. Stefnan var sett á ráðstefnu sem  norsku JesúKonurnar stóðu fyrir og bar yfirskriftina "Just Give me Jesus" Aðalræðukonan Anne Graham Lotz, dóttir Billy Graham.

Alls fóru 87 íslenskar konur í ferðina, frá 10 stöðum á landinu. Mikil spenna og eftirvænting var í hópnum þegar lagt var af stað fyrir því sem við vorum um það bil að fara að upplifa. Mikið hafði verið beðið fyrir ferðinni að Guð mætti mæta hverri einustu konu á persónulegan hátt
Lesa meira



Kyfnerðislegur hreinleiki leysir þig
Viðtal við söngkonuna Rebeccu St. James
  Áætlun Guðs fyrir okkur inniheldur ekki kynlíf utan hjónabands segir sönggonan Rebecca St. James. Bókin hennar "Bídddur eftir mér" kom út árið 2006 og seldist í 9000 eintökum.

"Ég finn fyrir virðingu í minn garð vegna afstöðu minnar" segir Rebecca St. James sem átti eiginlega von á meiri fordómum og gagnrýni vegna afstöðu sinnar um að bíða með kynlíf fram að hjónabandi.


Lesa meira


Rekin úr skóla fyrir að vilja vera hrein mey!
Hin 17 ára gamla Lydia Playfoot frá West Sussex á Englandi á mjög sérstaka sögu. Hún var meðal aðal gesta á stelpuráðstefnunni í Osló í september sl. en JesúKonur í Noregi héldu þá sína árlegu ráðstefnu sem að þessu sinni var tileinkuð unglingsstelpum.

Lesa meira
Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 212
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 70949
Samtals gestir: 19017
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 15:09:15