JesúKonur er starf fyrir konur á öllum aldri sem vilja meira!

Við þráum að kristnar konur um allt land, óháð kirkjudeildum rísi upp og taki stöðu sína sem JesúKonur og saman getum við verið einn her sem boðar Jesú á landinu okkar. 

 
Yfirskrift starfsins er tekin úr Sálmi 68:12
"Konurnar sem sigur boða eru mikill her".


Markmið
   JesúKonur hvetja konur til að eignast dýpra samfélag við Jesú og verða sterkari einstaklingar í gegnum lestur Biblíunnar og bæn.
    JesúKonur vilja stuðla að uppbyggilegri kennslu á samverustundum og í heimahópum.
    JesúKonur hvetja konur til að virkja þær gjafir sem Guð hefur sett í líf þeirra og þjóna lifandi Guði í krafti og kærleika.
    Við viljum hvetja konur til að vera JesúKonur í sínu umhverfi með því að vera góðilmur Krists í samfélagi okkar.
    JesúKonur vilja stuðla að aukinni siðferðisvitund í landinu okkar með því að vera rödd Guðs á vinnustöðum, í skólastarfi og í fjölmiðlum.
    Við þráum að sjá kraft Guðs starfa í landinu okkar í gegnum hversdagshetjur á borð við mæður, eiginkonur, systur, vinkonur, ömmur og frænkur sem hafa yfirskriftina "JesúKonur" yfir lífi sínu.
    JesúKonur vilja leiðast af Heilögum Anda.


Staðbundnir hópar
   JesúKonur eru með starfssemi á þrem stöðum á landinu, á Akureyri, í Reykjavík og á Selfossi Upplýsingar um starfið má finna hér.
 

 Akureyri 
Reykjavík 
 Selfoss 


Heimahópar

JesúKonur á Íslandi vilja stuðla að uppörfandi kennslu til kvenna og stúlkna. EIn leið til að gera það er í formi heimahópa.

JesúKonur hafa notast við kennsluefni frá prédikaranum Anne Graham Lots, sem er dóttir prédikarans Billy Graham. Kennslurnar eru mismunandi en kenna allar hvernig hægt er að lesa Biblíuna markvisst svo Orð Guðs tali til manns í hver sinn.

Nokkrir heimahópar hafa verið starfræktir og munum við halda því áfram. Hópar geta staðið yfir í nokkrar vikur og allt upp í heilan vetur.

Ef þú hefur áhuga á að komast í heimahóp getur þú sent tölvupóst á jesukonur@jesukonur.is eða haft samband við einhvern af hópleiðtogum fyrir JesúKonur.

Flettingar í dag: 78
Gestir í dag: 35
Flettingar í gær: 212
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 70961
Samtals gestir: 19023
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 15:39:21